Valgerður Júlíusdóttir (Vala) er eigandi og kennari við Hundaskólann og hefur kennt á námskeiðum fyrir Hundaskóla Hundaræktarfélags Íslands síðastliðin þrjátíu ár. Hún byrjaði í hundunum árið 1995 þegar hún fór með sinn fyrsta hund á hundanámskeið hjá Hundaskóla HRFÍ. Fljótlega eftir það varð hún nemi hjá Hundaskóla HRFÍ og Hundaskólanum á Bala í Garðabæ. Upp frá því hefur Vala kennt á hvolpa-, grunn- og hlýðninámskeiðum ásamt sýningarþjálfun.

Um Völu hundaþjálfara

Vala er menntaður hundaþjálfari frá Hundaræktarfélagi Íslands. Auk þess er hún með meistaragráðu M.Ed í uppeldis- og menntunarfræðum með áherslu á stjórnun menntastofnana, B.Sc í viðskiptafræði og diplómu í stjórnsýslufræðum. Helstu áhugamál eru hundar og skóla- og uppeldismál.

Valgerður var framkvæmdastjóri Hundaræktarfélags Íslands frá 2008–2013. Hún er virkur meðlimur í HRFÍ með samþykkt ræktunarnafn, GLITNIR, frá FCI (Fédération Cynologique Internationale), alþjóðasamtökum hundaræktarfélaga. Hún hefur ásamt fjölskyldu sinni ræktað stóra og tignarlega afghan hunda en seinni ár lagt áherslu á írskan seta. Fjölskyldan hefur nýlega flutt inn fjóra írska seta sem er góð viðbót við írska setter-stofninn hér á landi. Börnin hennar tvö rækta írskan setter undir ræktunarnafninu Ruatogha.

Hafa samband

Sími: 820-6993 / 565-0407
Netfang: vala@hundaskolinn.is
Kennsla: Bílageymslan undir Firði, Hafnarfirði