Hundanámskeið í boði
Öll námskeið byggja á samstarfsvilja og vinnugleði hundsins. Kennt er í bílageymslunni undir Firði í Hafnarfirði, 2x í viku (mánudaga og miðvikudaga) kl. 18:00. Skráning fer fram hér á vefsíðunni og Vala hefur samband við þátttakendur áður en námskeiðið hefst.
Hvolpa-, grunn- og hlýðninámskeið eru 9 skipti og kosta kr. 37.000.
Hvolpa- og grunnnámskeið
Byrjendanámskeið fyrir hvolpa frá 3ja mánaða aldri og hunda frá 7 mánaða aldri. Námskeiðið stendur yfir í u.þ.b. 7 vikur og eitt skipti er kennt á öðru svæði í umhverfisþjálfun.
Farið er í grunnæfingar eins og taumþjálfun, innkall, sitja og liggja. Unnið er með samstarfsvilja hundsins og honum kennt að vera í slökun og augnsambandi við stjórnandann. Kennslan er miðuð hverju sinni við aldur og þroska hundanna — meiri kröfur eru gerðar til eldri hunda en hvolpa, en allt fer það eftir getu hunds og stjórnanda.
Bólusetning gegn smáveirusótt (parvo) er skilyrði; hvolpar þurfa að hafa fengið tvær bólusetningar. Námskeiðið veitir afslátt af hundaleyfisgjöldum hjá þeim bæjar- eða sveitarfélögum sem bjóða upp á slíkt.
Hlýðninámskeið (framhald)
Fyrir hunda sem lokið hafa hvolpa- eða grunnnámskeiði. Æft er: skoða tennur, hælganga í taumi, lauslega farið í lausa hælgöngu (valfrjálst), sitja og bíða, sitja í hóp og bíða, standa, hoppa yfir hindrun, innkall og áreitisæfingar.
Lögð er áhersla á vinnugleði og samstarfsvilja hundsins. Gerðar eru mun meiri kröfur til hundsins en á grunnnámskeiði og til að ná góðum árangri er nauðsynlegt að æfa hundinn daglega.
Einnig í boði
Þessi námskeið eru ekki með fastar dagsetningar. Sendu tölvupóst á vala@hundaskolinn.is og Vala hefur samband um næstu skref.
Hlýðni II
Fyrir alla hunda sem lokið hafa hlýðninámskeiði. Ætlað þeim sem vilja skerpa á fyrri æfingum og vinna meira með hundinn lausan á hæl. Kennt verður m.a. að leggjast á göngu, standa á göngu, innkall og standa, sækja og skila, senda hundinn yfir hindrun, fjarlægðarstjórnun og liggja í hópi með öðrum hundum. Námskeiðið er 8 verkleg skipti. Dagleg æfing er nauðsynleg til að ná góðum árangri.
Einstaklingskennsla
Einkatímar fyrir þá sem óska eftir. Tíminn er algjörlega einstaklingsmiðaður og stjórnast af þörf hundaeigandans. Allir sem tengjast hundinum eru velkomnir. Sendu tölvupóst með upplýsingum um viðfangsefnið og Vala verður í sambandi um næstu skref.